Færsluflokkur: Bloggar
Eitthvað að misskilja
Þetta skrifar Ásta Möller - http://www.breidholtid.is/?id=96
Færsla Ástu Möller....... eitthvað virðist hún klippa það mikilvægasta úr textanum.....
---
27.04.2007 - Rangfærslur í auglýsingu Samfylkingarinnar
Þá var spiluð auglýsing Samfylkingarinnar með rödd eins frambjóðanda flokksins um stefnu hans varðandi tannheilsu íslenskra barna. Þar var fullyrt að hún hafi versnað á síðustu árum.
Þetta er einfaldlega rangt.
Hér er líklega verið að vísa í nýlega kynnta rannsókn á tannheilsu Íslendinga. Hana má nálgast hér , en þar er m.a. borin saman tannheilsa íslenskra barna á árunum 1995 og 2005
Þar segir m.a eftirfarandi:
"Tíðni tannskemmda meðal barna og unglinga á Íslandi lækkaði mjög hratt á árunum 1986-1996 en undanfarin áratug virðist hafa hægt mjög á þeirri jákvæðu þróun.
Ef eingöngu er miðað við niðurstöður sjónrænnar greiningar nú virðast litlar breytingar hafa átt sér stað á tannheilsu 6, 12 og 15 ára barna og ungmenna undanfarin 10 ár..."
Fullyrðing frambjóðandans um versnandi tannheilsu íslenskra barna stenst því ekki og er röng.
Þetta eru óvönduð vinnubrögð frá hendi Samfylkingarinnar og vekur spurningar um annað áróðursefni sem frá þeim kemur.
Ásta Möller, skipar 4 sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík suður.
---
Þessi texti er tekin af http://lydheilsustod.is/frettir/tannvernd/nr/1986
Tíðni tannskemmda meðal barna og unglinga á Íslandi lækkaði mjög hratt á árunum 1986-1996 en undanfarin áratug virðist hafa hægt mjög á þeirri jákvæðu þróun.
Ef eingöngu er miðað við niðurstöður sjónrænnar greiningar nú virðast litlar breytingar hafa átt sér stað á tannheilsu 6, 12 og 15 ára barna og ungmenna undanfarin 10 ár en þegar niðurstöður röntgenskoðunar bætast við er ljóst að tíðni tannskemmda fer vaxandi og áhyggjuefni er hversu mikið er um að ekki sé gert við tannskemmdir (D3T) bæði hjá 12 og 15 ára börnum og ungmennum.
Bloggar | 7.5.2007 | 19:35 (breytt 8.5.2007 kl. 08:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Að selja Landsvirkjun er ekki boðlegt fyrir fólkið í landinu, sama hvað Sjálfstæðismenn segist get gert fyrir peninginn.
Væntnlega ætla þeir ekki að borga þeim sem þeir tóku landið af með eignarnámi, vænti þess nú ekki.
Kannski segjast þeir ætla að laga vegi, en á þeim vegum sem þarf að laga er nú ekkert GSM símasamband -> af hverju ætli það sé? Áður en síminn var einkavæddur átti að vera búið að klára þennan hring en það var ekki gert og Grunnnetið mátti ekki selja sér því það er nú EKKI hægt að skilgreina það -> samanber fyrirtækið Mílan....
Er fólk í alvöru ekkert uggandi yfir þessari þróun. Hvað er það versta sem gæti gerst í þessari stöðu ? En það besta.
Ég segi burt með Ríkisstjórnina, ríkisstjórn sem hlustar ekki á fólkið í landinu, ríkisstjórn sem tekur ákvarðanir í bakherbergjum....
Bloggar | 2.5.2007 | 11:38 (breytt kl. 19:37) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
BUGL (Barna- og unglinga geðeild Landspítalans )
170 börn bíða eftir að fá páss hjá BUGL en þar eru 17 legu pláss í boði. (Fréttablaðið, 21.apríl 2007)
Er fólk sátt við, þess stefnu í heilbrigðismálum ?
Er þetta velferðarþjóðfélagið sem við búum í ?
Ætlar fólk jafnvel að kjósa flokkinn sem er búið að vera við völd síðustu 16 ár aftur til að tryggja að svona verði áfram haldið ?
Ég þekki einstaklinga sem hafa átt við geðræn vandamál sem börn, einstaklinga sem nú eru full gildir meðlimir þjóðfélagsins, en það eru þeir sem hafa fengið pláss á BUGL. Aðra þekki ég sem fengu ekki aðstoð og eru nú fastir í klóm vímuefna, ekki það sé algilt en allir hljóta vera sammála um að við viljum ekki að börnunum okkar NÉ BÖRNUM ANNARA LÍÐI ILLA vegna biðlista Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.
Fólk flytjast búferlum til Reykjavíkur til að bjarga barninu sínu því sjaldnast er hægt að leita sér aðstoðar í byggðalögum landsins, nema að mjög takmörkuðu leiti, skólasálfræðingar koma kannski 1 sinni í mánuði. En hvað gerir fólk ekki fyrir börnin sín!!!
http://www.samfylkingin.is/ Skoðið Unga Ísland.
Bloggar | 21.4.2007 | 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í Fréttablaðinu í gær var verið að fjalla um hvaða þingmaður bæri mesta kynþokkann. Ýmsir voru þar nefndir til sögunnar og fór ég aðeins að ræða þessa útlistun í vinnunni, aðeins var skeggrætt um hverjir ættu ekki heima þarna og hverja vantaði inn á þennan lista að okkar mati. En þá leiddi ein spurning upp í huga minn: Kemur það eitthvað pólitík við að hafa kynþokka, er það eitthvað sem kemur fólki áfram í pólitík ?
Annars er glæsilegt blað Samfylkingarinnar komið út í kraganum, Til hamingju með það Samfylkingarfólk.
Bloggar | 21.4.2007 | 11:30 (breytt kl. 11:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 16.4.2007 | 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggar | 16.4.2006 | 14:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldri færslur
Bloggvinir
Af mbl.is
Innlent
- Varð fyrir líkamsárás og ráni
- Guðríður Hrund nýr skólameistari MK
- Umfjöllun um klæðnað kvenkyns frambjóðenda óskiljanleg
- Allt frá reiði yfir í létti
- Ömurlegt að ráðist sé gegn fjölskyldum blaðamanna
- Halla: Mikilvægt að halda utan um kristin gildi
- Tekst Jóni að lækka í leiðindunum á föstudag?
- Manndrápsmálið í Kiðjabergi: Taka ákvörðun á morgun
- Fágæt eintök á uppboði
- Þurfa að taka myndir áður en goslokum er lýst yfir
Erlent
- Birta myndskeið af skíðastökkinu
- Svæði mótmælenda rýmt af lögreglu
- Fyrrum borgarstjóri sleginn í höfuðið
- Tók eigið dráp upp
- Friðarviðræður hafnar á ný í Kaíró
- Syrgja fyrrverandi áróðursmeistara
- Hættu við vopnasendingu til Ísraels
- Vilja að ríkið niðurgreiði verð á döner kebab
- Swinney nýr forsætisráðherra Skotlands
- Stormy Daniels bar vitni í máli Trump
Fólk
- Gerði allt vitlaust með svari sínu
- Hefur engan tíma til að hitta Harry
- Edda Björgvins og Björgvin Franz sömdu kosningalag fyrir Jón
- Það er mikill heiður að fá að kynna stig íslensku dómnefndarinnar
- Auðvitað hefðum við viljað enda þetta öðruvísi
- Grease-leikkona lést á heimili sínu
- Guðni mætti á samstöðutónleika á Eurovison-kvöldi
- Queen Latifah mætti ásamt kærustu sinni
- Hera komst ekki áfram
- Mér líður stórkostlega